Veiðikortið 2012 veitir nær ótakmarkaðan aðgang að 37 vatnasvæðum vítt og breitt um landið. Veiðikortið er mjög hagkvæmur valkostur sem hentar jafnt veiðimönnum sem fjölskyldufólki. Veiðikortið er að hefja sitt áttunda starfsár. Allt frá fyrsta degi hefur Veiðikortinu verið mjög vel tekið og þessum frábærum viðtökum má þakka það að hægt hefur verið að auka framboðið jafnt og þétt. Nánari upplýsingar um veiðikortið er að finna á vefsíðu þess, veidikortid.is
Veiðikortið og Veiðibók.is eru í samstarfi um skil á veiðiskýrslum. Hægt er að skila veiðiskýrslum fyrir öll veiðisvæði Veiðikortsins hér á vefnum. Þú getur skilað nafnlausri veiðiskýrslu eða skráð þig sem notanda á Veiðibók.is, skráð númer Veiðikortsins og þá skilar þú sjálfkrafa veiðiskýrslu þegar þú skráir veiðiferð í eitt af vötnum Veiðikortsins.