Andakílsá er þægileg og aðgengileg laxveiðiá í Borgarfirði sem lætur ekki mikið yfir sér enda er hún afar lygn og róleg. Áin er sem einn samfelldur fluguveiðistaður og hefur notið sívaxandi vinsælda veiðimanna sem hana heimsækja.
Áin fellur úr Skorradalsvatni í Andakílsárfossa og liðast þaðan u.þ.b. 8 km löng um sléttlendið niður í Borgarfjörð. Áin skiptist í laxa og silungasvæði og er laxasvæðið um 4 km langt og nær frá Andakílsárfossum niður að brú við þjóðveg. Áin hentar afar vel til fluguveiða og fer það agn mun betur í ánni en nokkurt annað
Veitt er í ánni með tveim dagsstöngum frá 20. júní til 30. september ár hvert og fer Stangaveiðifélag Reykjavíkur með þriðjung veiðileyfa í ánni í samstarfi við Stangaveiðifélag Akraness sem hefur til umráða fjórðung veiðileyfa.
Helstu veiðistaðir eru Þrjú, Efri Fossbakkhylur og Nátthagahylur.
Veiðihúsið við Andakílsá er þægilega staðsett stuttan spöl frá ánni en frá húsinu sést vel til neðri hluta veiðisvæðisins. Svefnrými er fyrir 7 manns í tveimur svefnherbergjum. Í baðherbergi hússins er sturta og við húsið er gasgrill. Við húsið er heitur pottur. Í húsinu eru sængur og koddar en veiðimenn leggja sjálfir til sængurfatnað og allar hreinlætisvörur. Ræsta skal húsið rækilega fyrir brottför.
Daglegur veiðitími: Frá 20. júní til 14. ágúst er veitt frá kl. 7:00-13:00 og kl.16:00-22:00. Frá 14. ágúst til 14. september er veitt frá 7:00-13:00 og 15:00-21:00. Athugið að eftir 14. september er seinni vaktin færð fram um klukkutíma eða frá kl. 14:00-20:00.
| Staður | Dagsetning | Fjöldi fiska | Lýsing | |
|---|---|---|---|---|
| Andakílsá | 11.06.2011 | 0 | Gjörsamlega steindautt. ... | Skoða veiðiferð... |
| Andakílsá | 12.09.2010 | 2 | Byrjum á slagin 07:00. Þ... | Skoða veiðiferð... |